3.1.2009 | 01:07
Nýtt ár - Nýir tímar - Skrýtinn draumur...
Komiði sæl kæru vinir og gleðilegt nýtt ár!
Það er einhver fiðringur í mér gagnvart nýja árinu, þessi fiðringur byrjar djúpt ofaní maga og kitlar mig alla leið upp að úfi (samt ekki þannig að ég kúgist...heldur á góðan hátt.)
Ég er búinn að vera að humma lag síðan ég vaknaði í morgun, ég gat samt ekki munað hvaðan ég þekkti þetta lag. Það var sungið hástöfum í draumi sem ég dreymdi í nótt og ég hef ekki náð því útúr kollinum á mér.
Draumurinn var mjög einkennilegur, ég sat í náttslopp einum fata á bekk við fjölfarna götu, það voru samt ekki bílar sem þeystu um göturnar, heldur svifu óvenjustór kampavínsglös fram og tilbaka. Glösin voru svo stór að manneskjur gátu staðið uppréttar í þeim, má segja að þau hafi verið barmafull af nafntoguðum manneskjum, því ég þekkti alla sem í þeim voru. Þetta voru innlendir og erlendir framámenn í viðskiptalífinu, stjórnmálum og menningarlífinu, jafnvel nokkrir konungbornir. Glösin snertust létt er þau mættust og þá klingdi fallega í þeim (greinilega mjög fínn kristall... tékkneskur?), allir brostu breitt, hver inni í sínu glasi, og kristalstónarnir mynduðu fallega tónlist sem minnti dálítið á Hnotubrjótinn, nánar tiltekið Dans Plómuprinsessunnar.
En allt í einu fór ég að taka eftir því að þetta glaða fólk var alls ekki eitt á götunni. Þau flutu um í mestu makindum hægra megin á götunni og voru engan að trufla en svo fór ég að átta mig á því að það voru annars konar farartæki vinstra megin á götunni. Þar þutu hjá gamlir kaffibollar með fýldu fólki innanborðs. Kaffibollarnir voru illa þvegnir með sprungum og það hafði kvarnast upp úr brúnunum (ég hef það fyrir reglu að henda umsvifalaust kaffibolla sem hefur kvarnast uppúr...öryggisins vegna) og fólkið innanborðs var í skítugum lörfum, með skemmdar tennur og fýlusvip. Þeir flutu ekki mjúklega eins og kampavínsglösin með sína farþega, heldur rykktust þeir til klunnalega. Þeir fóru glannalega nærri fallegu kristalsglösunum að því er virtist viljandi. Það var eins og þeir væru að reyna að skella sér klunnalega utan í þunnan kristalinn. Ég fór að hafa miklar áhyggjur, því það ættu allir að vita að maður skálar ekki fast í kristal, það endar aðeins á einn veg... og það var ekki hjá því komist... KRASSS!!!! Kristalsbrotin flugu í allar áttir og aumingja farþeginn, viðkvæmur, fínlegur aðalsmaður, skall í götunni og hruflaðist illa. Ruddinn á kaffibollanum sem olli þessu alvarlega slysi rykktist ruddalega burt og hló kuldalega. Allir voru í losti og enginn gat hreyft legg né lið, en ég brást snöggt við, stökk upp af bekknum til bjargar aðalsmanninum sem lá í blóði sínu, en ég áttaði mig ekki á því að sloppurinn var opinn og ég var í engu innan undir. Það var ekki fyrr en ég fann kaldan andvaran leika um líkama minn að ég áttaði mig á því að ég hafði berað meira en ég hafði nokkurn tíma hugsað mér að bera... Ég reyndi að skýla nekt minni með sloppnum en ég náði ekki taki á honum, einhverra hluta vegna var hann ekki lengur til staðar. Ég missti auðvitað gjörsamlega stjórn á mér, lagðist í götuna og hringaði mig saman öskrandi: „Lokið augunum! Þetta er mjög ólíkt mér, ég er vanalega mjög passasamur með nekt!“ Ég kreysti aftur augun og óskaði mér að ég væri kominn á annan stað.
Ég opnaði aftur augun og mér til mikillar furðu var ég staddur í sláturhúsi, alklæddur og allt í kringum mig héngu svínsskrokkar... Þá komum við aftur að laginu sem ég talaði um í upphafi, þ.e. svínsskrokkarnir sungu hástöfum lagið og þeir hljómuðu eins og fínasti karlakór. Þarna stóð ég í hvítum stígvélum með hvíta svuntu framan á mér og stóran hníf í lófanum og svínin sungu eins og þau ættu lífið að leysa, sem var mjög einkennilegt, því þau héngu með opna líkamana blóðlaus á kjötkrókunum...
Þarna vaknaði ég og hef verið í ljómandi góðu skapi síðan. Ég veit ekki hvað þessi draumur merkir, en ég er viss um að hann hafi einhverja þýðingu. Eins og ég sagði í upphafi hef ég hummað lagið í allan dag, veltandi því fyrir mér hvaðan ég þekki það. Allt í einu sló því niður í kollin á mér hvaða lag þetta er... þetta var Final Countdown með sænsku rokkhljómsveitinni Europe. Ég var ekki hrifinn af þessu lagi á sínum tíma, en nú finnst mér það ljómandi gott. Ég ætla að bregða mér í bæjarferð og kaupa mér þessa plötu! Verst hvað þeir voru subbulega klæddir og þetta síða rokkarahár hefur mér aldrei fundist smekklegt.
Eftir þennan draum er ég sannfærður um að þetta ár verður gott!
Nýjárskveðja,
Frímann Gunnarsson

Athugasemdir
Gleðilegt ár Frímann.
Eitt er víst að þetta er merkilegur draumur hvað svo sem hann táknar. ;)
Það er ekki á hverjum degi sem aumur grunnskólakennari eins og ég fær að leiðrétta bóhem eins og þig. Ég sé að þú hefur óvart bætt j inn í orðið nýir í titli bloggsins, sjálfsagt í asanum við að koma þessum merka draumi frá þér. ;)
Kristín (IP-tala skráð) 3.1.2009 kl. 16:36
Þakka þér innilega kæra Kristín,
Fyndið, mig rekur ekki minni til þess að ég hafi nokkurn tíma áður gert stafsetningarvillu, ekki einu sinni í grunnskóla. En einhvern tíma er allt fyrst. Nemendur þínir eru greinilega í góðum höndum!
Frímann Gunnarsson
Frímann Gunnarsson, 3.1.2009 kl. 17:46
Athyglisverður draumur stórmennis. Í mínum huga táknar þessi stórmerkilegi draumur ákveðin vatnaskil - þ.e. að þú Frímann, komir til með að vera ákveðinn örlagavaldur í því ferli sem nú er hafið, sem felst í því að rétta við hlut hinna borgaralegu stétta sem sætt hafa ómakegum árásum af hálfu sótsvarts almúgans (kaffibollanna). Nektin í þessu sambandi táknar auðvitað að þú munir opinbera þína miklu visku - sem síðan muni vera til heilla fyrir hina borgaralegu stétt. Vera þín í sláturhúsinu er svo aftur birtingamynd þess efnis að viskan verði virkjuð í verki. Með kveðju.
Pétur Sigurðsson (IP-tala skráð) 3.1.2009 kl. 18:35
Ég bar nokkur stikkorð úr drauminum þínum undir veraldarvefinn en hann hafði þetta að segja:
To see or sit on a bench, signifies your tendency to procrastinate and put things aside. It also suggests that you often take on a passive role instead taking initiative.To see a broken cup in your dream, denotes feelings of powerlessness, guilt and/or low self-esteem. Perhaps you feel unqualified or inadequate in dealing with a situation.
To see a wine glass in your dream, represents happiness. It may also be symbolic of a pregnancy. If you break the wine glass, then it may denote a miscarriage.To dream that you suddenly discover your nudity and are trying to cover up, signifies your vulnerability to a situation.
To see a pig in your dream, symbolizes dirtiness, greediness, stubbornness or selfishness. The pig may also represent opulence and overindulgence.
To see or dream that you are wearing boots, refers to the power in your movement and the boldness of your position. You are taking a firm stance.
To see an apron in your dream, suggests that you or someone is making a commitment to work on a task, especially if it is a family or nurturing one. It also symbolizes protection and secrecy.
To hear harmonious music in your dream, signifies prosperity and pleasure, You are expressing your emotions in a positive way. Music serves to heal the soul.Óskar Örn Arnarson (IP-tala skráð) 3.1.2009 kl. 21:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.